Grétu blogg
Nýtt blogg
<description>http://greta.blogg.is/
6.3
<description>Á heimilinu þar sem allir eru komnir í fullorðinna manna tölu er allt að gerast.
Búin að ryksuga og þrífa kofann í morgun 
Búin að þvo 3 vélar af þvotti og hengja út (afar húsfreyjulegt)
Búin að baka 3 plötur af bollum (afar húsfreyjulegt, þangað til ég ver að upplýsa að Inga syss kom með 2 plötur bakaðar og hræði þá 3ju og ég þurfti bara að setja hana í ofninn)
Búin að baka brauð(gerði það aflveg sjálf, hef vitni)
Í gær fór ég með Rannveigu vinkonu minni í verslunarferð á Eski og Reyðarfjörð. Við Rannveig erum í félagi sem heitir Verslunarfélagið og er afar vandaður félsgsskapur. Markmið félagsins er að fara í verslunarferið og gera gríðalega hagstæð innkaup.
Í gær keypti ég mér td. klukkustreng, óútsaumaðan, mig var búið að vanta svoleiðis lengi. Verst að það hræðir mig hvað mig langar til að byrja að sauma hann strax, bendir það til að aldurinn sé að færast yfir mig eða ???? 
Lifið heil
27 febrúar
<description>Það eru 4 dagar þangað til allir á heimilinu teljast fullorðnir í árum talið. Ég ætla hins vegar aldrei að verða fullorðin, aðferðirnar sem ég nota til að halda mér ungri eru ma. þessar
Vera með tyggjó og blása kúlur í gríð og erg.(get boðið uppá námskeið fyrir þá sem vilja prófa þessa aðferð)
Hlægja að óförum annara (nei það þroskast ekki af mér)
Hlægja af kúk og piss bröndurum sem Sirrý fænka mín segir  ...
En þrátt fyrir þetta allt verður ekki hjá því komist að horfast í augu við að litla barnið á heimilinu verður 18 ára á næsta föstudag.
En ég fór í eðal verslunarferð með góðum vinkonum í gær, fórum til Akureyrar með nesti (nema ég, ég át bara frá hinum) og svo keyptum við okkur allar sleypikápur nema ein okkar. Sleypikápa er yfirhöfn úr háluefni svo hárið á manni sitji ekki allt fast í efninu eins og t.d. í ullarkápum.
Þetta er allt annað líf.
Svo keypti ég 2 hrossagaukabolla handa okkur Fúsa mínum. Áttum gríðalega rómatíska stund yfir morgunteinum.
Það var líka allt annað líf.
Dreif í að skúra fyrir páskana áðan, leit svo á dagatalið, komst þá að því að þeir eru í sumar.
Konudagurinn 2011
<description>Ég á voða bágt, er búin að eyða helginni í að vera með pest. Bara í dag er Lilja búin að segja 5 sinnum við mig "ég vorkenni þér ekki neitt það er ekkert að þér" hvar ætli barnið læri svona viðmót, hlýtur að vera í skólanum...
Karlmennirnir eru báðir búnir að vera af bæ síðan eldsnemma í morgun, Jón þykist vera í vinnunni (eru flugumferðarstjórar ekki í verkfalli)og Fúsi minn þykist vera upp á Vaðbrekku. Gruggulegt hvað hann er oft búin að vera utan þjónustusvæðis í dag þegar ég hef reynt að hringja í hann, en eins og kunnugir vita er loftlínan frá Vaðbrekkubænum í næsta GSM mastur hámark 500 m.
Það eru sumsé engin blóm og engin steik. Lilja fór að versla áðan og keypti pulsur svo hver geti eldað handa sér þegar hentar og þegar menn eru hættir að vera þar sem þeir þykjast vera.
Á dögunum fékk ég dugnaðarkast og ákvað að Jón minn myndi mála forstofusalernisherbergið, sem hann gerði með kurt og pí. Fyrst reif hann allt lauslegt út af því þar með talið postulínið og setti það í bílskúrinn í geymslu (til að það valdi engum misskilningi þá er annað postulín í kofanum) Þar var það þrifið að utan og innan og beið spennt eftir að komst á sinn stað aftur.  Svo óheppilega vildi til að Fúsi minn var eitthvað að bægslast út í bílskúr og rak sig í eitthvað járn sem datt á postulínið og braut það...Núna er  notuð indverska aðferðin og pissað beint í rörið og nóg pláss  á pínulitla forstofusalnisherberginu...
Langaði ekki öllum að vita þetta
22.1
<description>Núna er ég alveg viss ég sé með athyglisbrest, fattaði það þegar mér var litið yfir handavinnuhauginn minn. Það sem er helst í vinnslu þar er eftirtalið
Ég ætti kannski að reyna að læra að prjóna með tánum...  
Gamla uppþvottavélinn á heimilinu dó í vikunni, í miðjum fyrri hálfleik Ísland - Japan. Kl 22,30 var ég búin að skanna allt internetið og finna nýja. En þar sem við voru bundin gömlu vélinni svo miklum tilfingaböndum héldum við aftur af okkur til fimmtudags að kaupa þessa nýju. Þessi nýja er yndisleg, ég bíð henni alltaf góðann daginn og góða nótt, uppþvottavélar eru uppfinning guðs.
Lifið heil
9 jan
<description>Er í þann veginn að gera merka uppgötvun, ef maður sefur fram að hádegi og leggur sig klukkutíma eftir kvöldmatinn gerist tvennt;
A: Maður verður ógurlega fallegur.
B: Maður er ekkert sifjaður um miðnætti, eiginlega bara alveg glaðvakandi.
Þá er eina í stöðunni að hanga í tölvunni, á facebook eða blogga, ætla að gera bæði.
Fúsi minn fór í sveitina mína í dag, með tengdaföður og mági. Hann uppgötvaði þegar hann var að hoppa út úr dyrunum að hann myndi missa af jólaskrautsniðurtektinni.  Hann fór grátandi út í bíl, veit ekki hvort það var af gleði eða sorg, sendi hann samt til sálfræðings eftir helgina, til öryggis...
Jólaskrautið er sumsé komið ofan í kassa og út í bílskúr, svo þér er óhætt að koma heim aftur.
Ég þarf ekki að kvarta um einveru. Ég held að frunsurnar fimm ætli að heiðra mig með nærveru sinn þetta árið, um leið og ein er uþb. að andast sprettur ný upp við hliðina(ofsakát). Númer 3 er mætt...
Ég er að spá í að láta fjarlægja af mér neðrivörina.
Jón Afríkufari er komin heim í kotið mitt. Hann og Lilja eyddu áramótunum í Köben  hjá frumburðinum. Það var voða gott að fá þau aftur.
7 jan.
<description>Ég er ekki ennþá búin að rífa niður jólaskrautið. Það bendir til þess að ég hafi öðlast einhvern jólaskrautaþolsþroska á sl. ári. Venjulega er það rifið niður með látum í síðasta lagi 4 jan. Þessi jólaskrautsþolsþroski gladdi börnin mín ekkert þegar þau komu heim í gær... nema Jón fannst það pínu notalegt að hafa skrautið uppi meðan hann borðaði "aðfangadagsrjúpurnar"
Eftir nokkradaga verður allt grenið hrunið af trénu, ég er að spá í að tína skrautið af, spreyja tréð grænt og nota það aftur næstu jól. Þá er allavega ekkert vesen með greninálar út um allt...
Næstu daga veður eldað íslenskt handa Jóni Afríkufara, væntalega verður matseðilinn eh. veginn svona:
Saltkjöt, kjötsúpa, og kjöt og kjöt og smákökur og mjólk, kannski smá fiskur...
Ég er pínu svekkt yfir því að það sé ekki ófært í vinnuna. Ég tók með mér möppur heim í gær og ætlaði að vera á náttfötunum í allan dag, drekka te og teikna í möppurnar og þess á milli að knúsa litlu börnin. En ég er sumsé  svo mikið fórnarlamb verðurins sem er ekki, svo ég neyðist í föt og í vinnuna 
Lifið heil
1.1.2011 Nýjársdagur !!
<description>Gleðilegt ár og takk fyrir gamla árið.
Ég og Fúsi minn sem erum búin að vera alein heima síðan þann 27, tókst að láta vorkenna okkur svo mikið að okkur var boðið í mat í gærkvöldi. Þvílík lukka í okkur. Inga syss og Úlfar snerust í kringum okkur, elduðu 3 réttað og við prófuðum allar gerðir af staupum.
En við vorum ekki alveg að standa okkur í flugeldakaupunum, allur þrýstingur sem venjulega er þess valdandi að það sé farið á flugeldamarkaðinn er úti í Kaupmannahöfn, 
en ég keypti freyðivín bæði fyrir börn og fullorðna, það þarf engan þrýsting til ég muni það ...
Dagskráin á fyrsta degi ársins er núll, nema ég ætla að steikja ket handa okkur Fúsa mínum.
Lifið heil 
28. des
<description>Núna eru öll börnin og tengdabörnin komin til kóngsins Köben. Ég og Fúsin minn eru tvö í kotinu. Hann er að vinna og ég komin í þvoum okkar þvott vísuna einu sinni ennnnnn...
Núna snýst þetta um að þvo rúmföt og handklæði, þetta er smá haugur. Fyrst var tekið utan af öllu fyrir jólin og svo fór slatti af fólkinu og þá kom meira og afþví að ég er að þessu á annað borð er ég líka að þvo fyrir fólkið sem dvaldi í þar,þar,þar næsta húsi yfir jólin og er flogið til síns heima núna.
En sem betur fer er þurrkari á heimilinu og í kvöld munum við Fúsi minn eiga afar rómatíska stund og brjóta allan hauginn saman, get ekki beðið ...
Fyrri nótt var fremur svefnlítil. Fórum mjög seint að sofa eða um 03,00. Jón sendi okkur sms um að hann væri annað hvort að lenda og fara í loftið og auðvitað var vaknað og lesið og svarað. Fanney var með taugadrullu út af fluginu egs-rvk og vakti mig kl 6,15 til við gætum verið með taugadrullu í steríó. Það var nebbla búið að seinka hennar flugi svo mikið að hún hefði ekki náð Köben fluginu, en það reddaðist allt, þökk sé starfsmönnum Flugfélagins á Egs. Svo þegar var búið að moka Fanneyju og Alex í flugið var að fara heima og koma Lilju í þarnæstu vél til rvk. Alltaf stuð hjá okkur
Núna ætla ég að elda hrísgjónagraut í kvöldmatinn og borða súrmat með, veit ekki hvort það verður snætt á undan eða eftir rómantíkinn.
24 des. aðfangadagur
<description>Á fyrirmyndarheimilinu eru allir voða latir, við erum komin í greiðum okkar hár vísuna. 
Gleðileg jól kæru lesendur
Lifið heil
Núna gat ég gert greinaskil, þökk sé Höllu frænku minni, en ég gat ekki sett inn mynd!!
22. des. og það er -18°C
<description>Ég er komin í skúrum okkar gólf vísuna, ég er algjör brilli (eða ekki) börnin hafa komið jólunum á koppinn þetta árið, nema smá sem ég gerði .
Á morgun á svo að elda skötu, í fyrsta skipti á þessum bæ. Ætla samt að láta Fúsa minn elda hana út í bílskúr, hef saltfisk á kantinum handa þeim sem vilja.
Ég og Lilja komumst að því í gær að fólk er voða alvarlegt í jólainnkaupunum. Það þykir tæpast við hæfi að móðir og dóttir flissi saman í búðinni og það var enginn húmor þegar ég reyndi að selja risastóra innkaupamiðann minn þegar ég var búin að nota hann, það stendur hvort sem það saman á öllum þessum miðum fyrir jólin. Hann er sumsé enn í boði gegn vægu gjald, kannski ég geymi hann til nætu jóla...
Lifið heil.
18 desember
<description>Ég er svo klárlega með þetta, búin að þrífa búrið og þvottahúsið...þangað verður gestum boðið þessi jól því ég nenni ekki að þrífa meira. Það er búið að baka 2 kökusortir og kaupa 4 ...
Hið árlega jólatrésdrama er á enda. Dæturnar völdu það á mettíma á jólamarkaði Barra, sumsé hjuggum ekki sjálf þetta árið, sem er alltaf metdrama. Mér sýnist að þetta tré þrufi ekki að liggja á hliðinni í stofunni.
Ég fékk að heyra það um daginn að fjölskyldunni minni finnst bara vesen að ég eigi afmæli á jóladag. Fanney úttalaði sig um það að þetta væri tvöfalt vesen og Fúsi minn sem ég hélt að gerði allt fyrir mig með gleði í hjartanu byrjar að fá kvíðaköst yfir þessu tvöfalda vandamáli í júli. Ætli sé hægt að fá nýja kennitölu áður en þau fara öll á taugum...
Lifið heil 
ps það er eitthvað að centralinu svo textinn kemur allur í belg og biðu, biðst forláts.
9.des
<description>Lilja er búin að uppgötva hvað hún hefur það að vera með athyglisbrest. Fyrir sirka 2 timum ætlaði ég að byrja að skrifa á jólakort. Síðan þá er ég búin að taka til í eldhúsinu, taka til í prjónagarninu, gera músli, lesa nýjustu vikuna og núna er ég að blogga. 
Eftir 5 daga kemur Fanney heim í jólafrí, hún ætlar að hafa kærastann með sér. Hlakka geggt til að fá þau. Hún og Lilja ætla að baka og skúra og skreyta. 
Mamman er nebbla að deyja úr ójólastuði, en það hlýtur að koma þegar mömmukökuylmurinn berst um húsið.
Ég er byrjuð í nýrri vinnu, er hætt í gömlu vinnunni eftir 10 ára veru þar. Nýja vinnan er fín og næstum alveg eins og gamla vinnan, er sumsé áfram í debet og kredit.
Lilja er byrjuð að hlusta á jólakasettuna sem ég græjaði í eh. sparnaðarkasti fyrir 20 árum. Er alvarlega að spá hvernig svona kasettur bila.
Lifið heil 
25.ellefti
<description>Heill mánuður frá síðasta bloggi, ég er engan vegin að standa mig. 
Það helsta sem hefur á daga mína drifið er að ég er búin að fara til Reykjavíkur, búin að veiða jólarjúpurnar á samt Fúsa mínum, búin að prjóna smá, búin að fra á nokkra fundi og eitt námskeið og vera löt að blogga.
En helsta sem er í fréttum hvað það er búið að vefjast fyrir mér að kjósa til stjórnlagaþings.
Ég ákvað að nota sömum forskrift og ein ágæt vinkona mín. Kjósa engan sem er stjórnmálafræðingur, lögfræðingur né hagfræðingur og engan sem er með lögheimili í Garðabæ.
Svo var byrjað að raða, þetta tók heilan fréttatíma á RÚV+Kastljós og smá af UglyBetty.
Fyrst setti ég alla sem ég þekkti persónulega, sem er auðvitað besta fólkið,  en samt 19 eftir. Svo setti ég alla sem ég kannast við og finnst gáfulegir, samt 10 eftir. Þá var að fara yfir listann aftur. Þá setti ég alla sem mér fannst fallegir sem ekki voru þegar komnir á listann, samt 4 eftir. Las listann aftur, þá fann ég pabba hans Helga Páls, og eh. 3 til viðbótar, blaðið prentað út og málið dautt :D
Skunda með plaggið á Sýsló á eftir og kýs utankjörstaðar í fyrsta skipti á ævinni.
Er að spá í að skilja blaðið eftir á biðstofunni á Sýsló því það eru eflaust margir í sömu vandræðum og ég... :D
Á morgunn á svo að skella sér í borgina, skelfa vini og vandamenn með nærveru minni og fara á eitt námskeið. 
Lifið heil
27. okt
<description>Ég er ekki mikil baráttukona, á kvennafrídaginn vann ég vinnudaginn á enda og fór þá beint í búðina og keypti hálfa körfu af sviðum, fór heim og tróð þeim í pott. Þegar kynsystur mínar voru fá baráttufundi, beið ég spennt eftir að suðan kæmi upp í pottunum. En núna er sviðasultan sumsé farin að halda pungunum félagsskap í læstu súrtunnunni. Núna á bara eftir að setja nokkrar lappir í kompaníið og bíða...
Ég var í sveitinni minni um helgina, eldaði og bakaði eins og enginn væri morgundagurinn, hitt fólkið þrælaði úti í almennum haustverkum og Fúsi minn uppá þaki að vanda. Þegar ég skrifaði í gestabókina við brottför komst ég að því að það hefðu verið á bilinu 12 til 18 manns í mat og kaffi um helgina, en þetta er alltaf jafn gaman :)
Gærdeginum var bjargað með Tupperwarekynningu, þetta eru þær allra skemmtilegustu kynningar sem ég fer á. Ég er svo heppin að sumt af Tupperwaredöllunum mínum eru fluttir til annara landa svo ég þarf "nauðsynlega" að fá mér nýja. Enda getur svona ofurhúsfreyja eins og ég ekki verið Tupperwaredallalaus ;)
Nágrannarnir eru með samsæri gegn mér. Þeir geyma einhvern kall í bakgarðinum hjá sér svo ég get ekki lengur staulast léttklædd(lesist á náttfötunum) um landareignina mína, svo sem út í bílskúr, út með ruslið og þessháttar...mér finnst þetta nú ekki fallega gert af þeim. 